3. september - 26. nóvember

Vikuleg gönguhugleiðsla

Gönguhugleiðsla

… er einföld, byggir á gömlum grunni og er mjög árangursrík. Öndun og ganga eru í raun grundvallarathafnir okkar tilveru og sem við framkvæmum oft án umhugsunar. Í gönguhugleiðslu eru þessar athafnir tengdar saman á markvissan og meðvitaðan hátt auk þess að stjórna hvert við beinum athyglinni.

Áhrif gönguhugleiðslu
Orkan sem við fáum kemur bæði í magni og gæðum. Við finnum muninn á okkur þegar við búum yfir mikilli eða lítilli orku. Eins finnum við muninn þegar við búum yfir gæðaorku en þá er eins og öll okkar kerfi, líkamleg og andleg, komist í annan gír eða séu samstillt á nýjan hátt. Hugleiðsla gefur þessa gæðaorku eða lífsþrótt (vitality) og gönguhugleiðsla þar með. Áhrifin eru:

 - aukin líkamleg, andleg og tilfinningaleg heilsa
 - aukin orka
- aukin líkamsskynjun
 - betra skap og betri stjórnun á skapsveiflum
 - aukinn skýrleiki, innsæi og athygli
 - nám og sköpun ganga betur
 - aukin tilfinning fyrir að vera í tengslum við sjálfan sig og umhverfið

Vikuleg hugleiðsla Haust 2024

Einu sinni í viku í Laugardal.

  • Dagsetning: 3. september - 26. nóvember

  • Dagar: Þriðjudagar

  • Tími: kl. 16.10 - 17.00

  • Verð:

    • Allt tímabilið:  18.000 kr. 

    • Klippikort 5 skipti:  9.000 kr.

    • Stakt skipti: 2.500 kr.

Í Laugardal

Í Laugardal

Labyrinth - upprunamynd.JPG
Gönguhugleiðsla að vetri

Gönguhugleiðsla að vetri

á Námskeiðinu:

  • þjálfarðu þig í að stjórna athyglinni

  • lærir grunnatriði og byggir ofan á þau

  • gerirðu ýmsar tegundir af gönguhugleiðslum

  • eflirðu núvitund

  • færðu góðu áhrifin frá náttúrunni og hugleiðsluástundun

Meðvituð öndun er þjálfuð í takt við gönguna og athyglinni er beint að mismunandi þáttum. Teknar eru hugleiðslulotur á göngu og einnig gerðar léttar æfingar á milli þess sem er gengið. Einnig eru gerðar standandi og sitjandi hugleiðslur. Hægt að ná fram mismunandi áhrifum allt eftir því hver öndunartakturinn er og að hverju hugleiðslan beinist. Æfingarnar í hverjum tíma eru því breytilegar.

Gönguhugleiðsla er utandyra á höfuðborgarsvæðinu en auðvelt er að stunda hana innandyra og frábært að kunna að grípa til þessarar einföldu aðferðar.

Klæðnaður
Gengið er stutt í einu, rólega og stoppað reglulega. Passa því að vera í hlýjum og skjólgóðum fötum eftir veðri. Gengið er bæði á malbikuðum stígum, malarstígum og í grasi. Mikilvægt að vera í skóm sem halda fótunum hlýjum og þurrum.

Annað: það hentar ekki að koma með hunda því það truflar einbeitinguna og hundar geta orðið órólegir. (Þetta á reyndar ekki við um leiðsöguhunda.)

Uppfært í apríl 2024