Starfsorkan og tíminn þinn
- Námskeið til að verja starfsorkuna OG TÍMANN ÞINN -
Þetta er netnámskeið sem hjálpar þér
að fara úr því að vera stöðugt undir álagi og í sama hjólfarinu,
yfir í að hafa skýra sýn á hvað þú ætlar að gera
til að viðhalda og byggja upp þína starfsorku.
Netnámskeið:
Námskeiðið er netnámskeið. Þú getur tekið námskeiðið á þeim tíma þegar þér hentar og á þínum hraða.
er námskeiðið fyrir þig?:
Ef þér finnst:
áreitið á þér endalaust
að tíminn þinn sé sífellt floginn frá þér
þú ekki hafa tíma fyrir þig og mikilvægu hlutina í þínu lífi.
þig vanta meiri orku / starfsorku.
að markmiðin nálgist ekki.
aldrei neinn tími fyrir það sem þig langar að gera
Ef þig langar að:
setja betri mörk til að halda í þinn tíma fyrir þig
að halda í og auka starfsorkuna.
hafa meiri tíma, sjálfstraust og sjálfstæði til að móta þitt starf og persónulegt líf eins og þú vilt.
Þá er þetta námskeið eitthvað fyrir þig
Starfsorkan og tíminn þinn munu gefa þér innblástur og verkfæri til að setja skýr mörk utan um þinn tíma og starfsorku.
Í lok þessa námskeiðs
veistu hvað þú ætlar að gera til að halda orku.
veistu nákvæmlega hvað þú vilt setja tímann í
hefurðu verkfæri til að móta vana og rútínu,
veistu nákvæmlega hverju þú vilt segja já við,
veistu nákvæmlega hverju þú vilt segja nei við,
veistu hvað þú gerir til að falla ekki í gömlu hjólförin
umsjón:
Hrönn Baldursdóttir heldur námskiðið en hún er reyndur náms- og starfsráðgjafi og hefur unnið við það i tuttugu og þrjú ár. Hún býr því að mikilli starfsreynslu við að vinna með fólki á ýmsum aldri sem er að móta stefnu sína á náms- og starfsferli og endurskoða stefnuna.
Hrönn hefur haldið fjölda námskeiða um ákvarðanir og breytingar á náms- og starfsferli, um val á námi og störfum, um námstækni, starfsumsóknir og um að efla hugrekki og þor.
Námskeiðið Starfsorkan og tíminn þinn hefur hún haldið sem staðnámskeið síðan 2017 en námskeiðið kallaðist þá Súrefnisgríman þín.
Hrönn fék viðurkenningu frá Félagi náms- og starfsráðgjafa (FNS) árið 2023 fyrir fagmennsku og nýsköpun í starfi.
Innihald
NÁMSKEIÐIÐ ER Í ÞREMUR HLUTUM
NÍTJÁN MYNDBÖND SEM LEIÐA ÞIG GEGN UM NÁMSKEIÐIÐ
12 VERKEFNABLÖÐ og 4 blöð í bónus um öndun og hugleiðslu
kaflaskipting námskeiðsins
Námskeiðinu er skipt í þrjá hluta auk inngangs og lokakafla:
Inngangur - Útskýring á námskeiði og vinnunni á námskeiðinu.
Hluti 1 - Að kortleggja stöðuna.
Hluti 2 - Framtíðarsýnin mín. Hvert vil ég stefna, hvernig vil ég hafa mitt daglega líf og starf.
Hluti 3 - Að móta leiðina þangað og hvenær og hvernig ég kemst þangað. Byrja að breyta venjum.
Lok - Draga saman og næsta skref.
Mjög góð vefgátt heldur utan um efnið og auðvelt er að sjá hvaða hlutar eru búnir og hvar þú byrjar næst ef þú hefur tekið hlé.
lengd:
Námskeiðið inniheldur fyrirlestra og verkefni sem þú vinnur á þínum hraða og þegar þér hentar. Það samsvarar um 4 - 6 klukkustunda námskeiði og er bútað niður í þrjár lotur. Loturnar innihalda nokkur verkefni til sjálfsvinnu hvert, alls 12 pdf-verkefni.
Hægt er að ljúka námskeiðinu á hálfum degi í góðu næði auk 1 - 2 klukkustunda vinnu viku seinna en það er líka hægt að vinna efnið smám saman yfir eina til tvær vikur eða annað sem hentar.
Bónusefni
Að auki fylgja leiðbeiningar um tvær öndunaræfingar og tvær hugleiðslur sem eru góðar til að auka orku og einbeitingu
Auk þess er það aukabónus að hafa aðgang að efninu að minnsta kosti í eitt ár og geta á þeim tíma alltaf farið í gegnum námskeiðið og verkefnin aftur
Hagnýtt
Þetta er hagnýtt námskeið þar sem þú íhugar þínar venjur í starfi og einkalífi. Þú skoðar þitt starfsálag og ferð yfir hvernig þú getur varið starfsorkuna. Vinnur verkefni sem styrkja þig í að setja þér mörk varðandi álag, út frá þeirri orku og tíma sem þú hefur yfir að ráða.
Fjallað er um hvað endurnærir og gefur orku. Fjallað um líkamlegar, andlegar og félagslegar þarfir. Á námskeiðinu gefst rými til að skoða hvernig þú sinnir þessum þörfum, hvort þú viljir sinna þeim á annan hátt og hvernig og hvenær ætlunin er að gera það.
Myndlíking við súrefnisgrímuna
Námskeiðið hét áður Súrefnisgríman þín. Súrefnisgríman er myndlíking við öryggisupplýsingar í flugi þegar okkur er sagt að festa fyrst súrefnisgrímuna á okkur sjálf áður en við aðstoðum samferðafólk. Til að geta sinnt þínum störfum og verkefnum þarftu að viðhalda eigin heilsu og jafnvægi. Inntak námskeiðsins er því að yfirfara þínar venjur við hvíld og störf og móta skýrari ramma utan um þinn tíma til að geta sinnt því sem þig langar til að sinna.
Með námskeiðinu færðu:
➡ Ýtarlegt grunnyfirlit um hvernig staðan er hjá þér og hvernig þú vilt halda utan um orkuna og tímann
➡ Skýran ramma til að vinna inn í þín áform
➡ Rafrænt netnámskeið í þremur hlutum, með 19 myndböndum og 12 verkefnum
➡ Námskeiðið flokkast sem starfsþróun, sjálfsefling og endurnýjun og ætti því að fást styrkt af stéttarfélögum.
Virði þess sem þú færð er mikið
og er í boði á aðeins 19.000 kr.
skráning
Skráðu þig með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Þú færð sendan reikning með greiðsluupplýsingum (getur einnig greitt strax með því að millifæra upphæðina, 19.000 kr. á reikninginn 515-26-560617, kt. 5606171510).
Þegar greitt hefur verið, færðu senda slóð á námskeiðið. Þú ferð á þínum hraða í gegnum myndböndin og verkefnin og getur horft á myndböndin eins oft og þú vilt. Aðgangur að efninu varir í eitt ár.
Flest stéttarfélög styrkja námskeið í starfsþróun.
Verð: 19.000 kr.
Ræktum okkur sjálf.
stattu vörð um þinn tíma og þína orku.
þannig geturðu blómstrað meira og
gefið af þér til þinna nánustu og heimsins
Nánari upplýsingar gefur Hrönn í síma 899 8588 eða hronn@thinleid.is
Uppfært í október 2024